ALLT FYRIR ÁSTINA

Vonandi vakti fyrirsögnin athygli... en það er farið að kvarnast úr hópnum hjá þeim félögum.

Kærustuparið og nú hjónin Rince Lei Yu frá Kína og Kuan Sim Sze komu til að klífa Aconcagua sem hluta af brúðkaupsferð sinni.

Lei Yu er þrautreynd fjallakona sem m.a. hefur gengið á Elbrus, Kilimanjaro og fleiri viðlíka tinda. Hún náði sér í fjárfestingabankamanninn Kuan Sim frá Singapoore sem ekki hafði áður gengið á fjöll en verið liðtækur í ræktinni. En hvað gerir maður ekki fyrir ástina segir Guðmundur og Kuan Sim samþykkti að fara til Argentínu til að klífa Aconcagua í brúðkaupsferð. Parið gifti sig 5. janúar sl. og fljótlega eftir það var lagt af stað til S-Ameríku.

En strax þegar upp í grunnbúðir var komið var Kuan Sim algjörlega búinn á sál og líkama. Þegar þau settust niður í messatjaldinu sofnaði kappinn og var hreinlega illa haldinn. Talið var að hann væri með vatn í lungunum og var hann fluttur niður til Mendoza í þyrlu en eiginkonan fékk far með múlasna og þar með lauk þessari fjallgöngu hjá þeim.

Þá hætti Kóerumaðurinn Chung Kyung líka eftir gönguna upp í 1 búðir í gær. Hann er búinn að vera með stöðugan niðurgang og orðinn máttfarinn og fór af stað á múlasnanum niður til Mendoza fyrr í dag.

Aconcagua 06: GSM í tjaldinu

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Aconcagua08

Höfundur

Jón Jóhann Þórðarson
Jón Jóhann Þórðarson
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Á toppi Vesturheims
  • Vínekrur í Mendoza héraðinu
  • 100_0061
  • Svona er útsýnið af toppnum
  • Horft frá Nido upp til Berlín (mynd frá GSM 2006)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband